Vortónleikar Tónlistarskóla Húnaþings vestra

Við kennarar í tónlistarskólanum erum í óða önn að skipuleggja vortónleika. Að þessu sinni ætlum við að vera í fyrra fallinu.

Það verða þrennir vortónleikar: Þriðjudaginn 5. maí og miðvikudaginn 6. maí verða tónleikar í matsal skólans kl. 16:30.

Síðustu tónleikarnir verða svo þriðjudaginn 12. maí þar sem söngnemendur skólans koma fram. Ath. þessir tónleikar hefjast kl. 17:00 og eru einnig í matsal skólans. 

 

Hlökkum til að sjá ykkur!

Nemendur og kennarar tónlistarskólans