Áætlun um öryggi og heilbrigði: Grunnskóli Húnaþings vestra (2026-2027)
1. Inngangur og stefna
Markmið áætlunarinnar er að tryggja öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk. Áætlunin byggir á lögum nr. 46/1980 um aðbúnað og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
- Vinnuverndarteymi: Sveinn Ingi Bragason (öryggisvörður) og Þorbjörg Valdimarsdóttir (öryggistrúnaðarmaður).
- Endurskoðun: Áætlunin er yfirfarin og uppfærð fyrir 15. janúar ár hvert.
2. Velferð og farsæld
- Andlegt öryggi: Skólinn skal vera griðastaður. Unnið er samkvæmt stefnu um jákvæðan aga og eineltisstefnu Grunnskóla Húnaþings vestra og sveitarfélagsins.
- Rafrænt öryggi: Starfsfólk fylgist með rafrænni hegðun og veitir fræðslu um netöryggi til að fyrirbyggja stafrænt áreitni. Foreldrar eru hvattir til samstarfs og beðnir um að virða aldurstakmörk á samfélagsmiðla um leið og þeir eru hvattir til að takmarka skjátíma.
3. Líkamlegt vinnuumhverfi og slysavarnir
- Inniloft og hiti: Miðað er við 18–22°C hita og rakastig 30–50% í skólastofum.
- Lýsing: 500–750 lux við vinnuborð til að fyrirbyggja augnþreytu.
- Hljóðvist: Markvisst er unnið að því að draga úr bergmáli og hávaða í sameiginlegum rýmum.
- Skólalóð: Umferð bíla er bönnuð á lóð á skólatíma. Snjómokstur og hálkuvarnir skulu kláraðar fyrir upphaf skóladags.
4. Eftirlit og áhættumat
- Öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður fara árlega í eftirlitsferð um húsnæðið (Vinnuumhverfisvísir).
- Leiktæki á skólalóð eru skoðuð reglulega og vottuð samkvæmt reglugerð 942/2002.
5. Skólaferðalög og útivist
- Í öllum ferðum skal a.m.k. einn starfsmaður bera sjúkrakassa og hafa aðgang að neyðarnúmerum foreldra.
- Ferðir eru skipulagðar með hliðsjón af veðri og búnaði nemenda.
6. Viðbrögð við slysum
- Minni háttar slys: Hlúð er að nemanda og haft samband við foreldra.
- Alvarleg slys: Hringt í 112. Lögregla kölluð til ef um alvarlegt líkamstjón er að ræða.
- Tilkynningarskylda: Vinnuslys starfsmanna sem valda fjarveru á slysadegi auk næsta dags skal tilkynna Vinnueftirlitinu innan 48 klukkustunda.
7. Eldvarnir
- Brunaæfing skal haldin fyrir 1. nóvember.
- Rýmingaráætlanir skulu vera sýnilegar í öllum stofum og öllum rýmum.
- Slysaskráning
Ritari sér um skráningu slysa. Núverandi staða er að slys eru skráð á eyðublöð sem geymd eru í möppu hjá ritara en mun skráningin færast í námsumsjónarkerfið Kentro á næstunni.
8. Viðauki 1 - Gátlisti fyrir eftirlitsferð
|
Atriði
|
Staða
|
Athugasemd
|
|
Eru flóttaleiðir greiðar og ólæstar?
|
Staða
|
|
|
Er sjúkrakassi á sínum stað og fyllt á hann?
|
Staða
|
|
|
Eru hættuleg efni geymd í læstum skápum?
|
Staða
|
|
|
Er rýmingaráætlun sýnileg í stofum og í opnum rýmum?
|
Staða
|
|
|
Er nafnalisti tiltækur hjá ritara ef brunaboði fer í gang og nemendur þurfa að safnast fyrir utandyra?
|
Staða
|
|
9. Úrbætur og athuganir
|
Hvað þarf að gera
|
Hver ber ábyrgð
|
Hvenær
|
|
Athuga loftgæði í stofum og opnum rýmum í eldri byggingum
|
Öryggisvörður og skólastjórnendur
|
Nóvember 2026
|
|
Hljóðvist á bláa gangi.
- Endurgera gólf
- Hljóðgildrur á veggi og upp í loft
- skipta ganginum upp í minni námsrými
|
Öryggisvörður og skólastjórnendur
|
Hönnun og kostnaðaráætlun gerð í janúar 2027
|
|
Athuga loftgæði í kjallara
|
Öryggisvörður og skólastjórnendur
|
Nóvember 2026
|
|
Endurnýja nemendahúsgögn á unglingastigi
|
Skólastjórnendur
|
Byrjar í janúar 2027, lokið í janúar 2030
|
| |
|
|
- október 2026