- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Sólin hefur verið einstaklega gjöful undanfarið og við í skólanum ákváðum að grípa gæsina! Uppbrotsdagarnir okkar, sem áttu upphaflega að vera dagana 27. og 28. maí, voru færðir fram um viku til að nýta þetta dásamlega veðurfar - og voru flestir ef ekki allir sammála um að það hafi verið frábær ákvörðun!
Gleðin skein úr hverju andliti þegar nemendur og starfsfólk nutu útiverunnar saman. Á þriðjudaginn var stöðvavinna í kringum skólann þar sem m.a. var spilað blak, máluð regnbogastétt, farið í ljósmyndaleik o.fl. Kennslustofurnar voru tómar en skólalóðin full af gleði. Á miðvikudaginn var svo haldið upp í Hvamm þar sem við áttum dásamlega stund í leikjum, gönguferð og gleði. Endilega kíkið á þessar myndir frá gleðinni.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is