- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Það var heldur betur líf og fjör í skólanum í vikunni þegar við héldum metnaðarfulla þemaviku um okkar dásamlegu heimabyggð, Húnaþing vestra. Markmiðið var að kafa ofan í sögu og menningu héraðsins á skapandi hátt og tókst það vonum framar hjá öllum árgöngum. Einnig hefur það verið draumur okkar í lengri tíma að skreyta veggi skólans meira með flottum verkefnum frá nemendum og var það heldur betur gert í vikunni.
Yngstu nemendurnir í 1. og 2. bekk kynntu sér líf sela með fjölbreyttum hætti. Þau kíktu í heimsókn á Selasetrið og unnu svo upplýsingaspjöld og ýmiskonar orðavinnu í tengslum við efnið. Á meðan var unnið af miklum krafti í 3. og 4. bekk við að hanna risastórt og glæsilegt kort af Hvammstanga. Kortið var um 20 fermetrar og einnig útbjuggu nemendur ákveðin hús á Hvammstanga í þrívídd sem sett voru á kortið. Á miðstigi var sett saman tímalína yfir sögu Húnaþings vestra, allt frá landnámi til dagsins í dag. Af nógu er að taka þar og verður skemmtilegt að leyfa því verkefni að halda áfram næsta vetur. Unglingastigið einbeitti sér hins vegar að Grettis sögu og setti hana upp á myndræna tímalínu. Tæknin fékk einnig að njóta sín þar sem nemendur hönnuðu heimasíður um sögulega atburði og tengdu þær beint við tímalínurnar með QR-kóðum. Inni á heimasíðunum má t.d. finna rapplag um Gretti sem flutt er á íslensku, dönsku og ensku. Þar er leikþáttur um hestaat, ljóð, viðtöl og frásagnir.
Veggir skólans voru skreyttir litríkum listaverkum sem unnin voru í tengslum við verkefnin. Einnig var sett upp sérstakt bókasafn með bókum eftir höfunda úr héraði þar sem nemendur unnu skemmtileg verkefni. Við skoðuðum líka gömul hús á Hvammstanga og ilmurinn af lambakjöti úr héraði og nýbökuðu brauði af kolagrilli fyllti loftið. Sláturhúsið styrkti okkur um lambakjöt í verkefnið og færum við þeim bestu þakkir fyrir.
Vikunni lauk svo með glæsilegri sýningu í gær sem var fjölsótt, okkur til ómældrar ánægju. Nemendur sögðu stoltir frá öllu því sem þeir brölluðu á meðan gestir röltu um skólann og skoðuðu fjölbreytt verkefnin. Þetta var sannarlega lærdómsrík vika sem skildi eftir sig margar góðar minningar.
Hér má sjá myndir frá öllu fjörinu.
Kirkjuvegi 1
|
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is