Stuðningsfulltrúi óskast við Grunnskóla Húnaþings vestra

Stuðningsfulltrúi óskast við Grunnskóla Húnaþings vestra

Grunnskóli Húnaþings vestra óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 100% starf. Lægra starfshlutfall kemur einnig til greina. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við leitum að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með börnum og ungmennum og stuðla að vellíðan þeirra og framförum.

Helstu verkefni

  • Að styðja nemendur í námi og daglegu skólastarfi undir leiðsögn kennara.
  • Að stuðla að sjálfstæði, vellíðan og félagslegri þátttöku nemenda.
  • Að aðstoða nemendur eftir þörfum og vinna með kennurum og öðru starfsfólki að stuðningi við þá.

Hæfni og eiginleikar

  • Áhugi á starfi með börnum og ungmennum.
  • Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þolinmæði.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og ábyrgð í starfi.
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi stuðningsfulltrúa er kostur.

Umsóknir og nánari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 4. október. Umsóknir sendist á gudrunstei@skoli.hunathing.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur ástæða umsóknar og hæfni viðkomandi til starfsins.

Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina hvenær þeir geta hafið störf og hvaða starfshlutfall þeir óska eftir.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, í síma 4552900 eða með tölvupósti á gudrunstei@skoli.hunathing.is.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.