- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Við Grunnskóla Húnaþings vestra er laus til umsóknar 80% ótímabundin staða matráðs.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Annast daglega ræstingu eldhúss, hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega og lætur umsjónarmann skóla vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf. Fylgist með borðbúnaði og öðrum lausamunum í eldhúsi og sér um endurnýjun og innkaup þegar þörf er á í samstarfi við skólastjórnendur.
Framreiðir á hverjum degi morgunverð, hádegisverð og nónhressingu sem skal vera tilbúinn á þeim tíma sem hentar dagskipulagi skólans.
Ber ábyrgð á pöntunum fyrir mötuneytið.
Bera ábyrgð að undirbúningi matsals fyrir hverja máltíð.
Samskipti við aðkeypta mötuneytisþjónustu eftir þörfum.
Aðstoð við undirbúning og móttöku gesta þegar tilefni eru til.
Frágangur í matsal og eldhúsi.
Hæfnikröfur:
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er æskileg
Lipurð í mannlegum samskiptum við börn og fullorðna
Rík þjónustulund
Sveigjanleiki og jákvæðni
Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum
Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Við ráðningu skal veita heimild til að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn sendist á eydisbara@skoli.hunathing.is
Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eydís Bára Jóhannsdóttir, skólastjóri, í síma 455-2400, netfang: eydisbara@skoli.hunathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is