Söngvarakeppni

Fimmtudaginn 26. febrúar fór árlega söngvarakeppnin okkar fram og í þetta skiptið var ákveðið að halda hana í matsal grunnskólans og erum við gríðarlega ánægð með þá útkomu.

 

Á svið stigu 18 nemendur í 12 glæsilegum atriðum. Sumir sýndu mikið hugrekki með því að stíga einir á stokk á meðan aðrir nutu sín í litlum hópum. Það er mikill sigur að koma fram fyrir fullum sal af fólki og við erum ótrúlega stolt af öllum okkar keppendum sem stóðu sig eins og sannar stjörnur.

 

Keppt var í tveimur aldursflokkum og var valið erfitt enda hæfileikarnir gríðarlegir. Í yngri flokknum (4.-7. bekkur) bar Almar sigur úr býtum en hann flutti lagið Fjöllin hafa vakað með Egó.

Emelía Íris bar svo sigur úr býtum í eldri flokknum (8.-10. bekkur) en hún var með glæsilegan flutning á lagi Whitney Houseton, I have nothing.

 

Við óskum þeim og öðrum keppendum innilega til hamingju.

 

Að baki svona vel heppnuðu kvöldi liggur mikil vinna. Við færum hljómsveitinni að sjálfsögðu okkar bestu þakkir en þeir hafa æft stíft með þátttakendum undanfarnar vikur. Þessi dýrmæti stuðningur og fagmennska hljómsveitarinnar gerði það að verkum að flytjendur gátu blómstrað á sviðinu og gert kvöldið að ógleymanlegri tónlistarveislu.

 

Til hamingju við öll með frábært kvöld!