Sex nemendur tóku grunnpróf

Nám við tónlistarskóla er skipt í þrjú áfangapróf, það fyrsta er grunnpróf, svo miðpróf og loks framhaldspróf. Í áfangaprófi er utanaðkomandi prófdómari fenginn til að dæma prófin og  Bergþór Pálsson kom úr Reykjavík til að hlusta og dæma prófin hjá okkur.  

Það er stór áfangi að fara í gegnum áfangapróf og frábært að hafa grunnpróf í farteskinu við lok grunnskóla. 

Við óskum nemendum innilega  til hamingju með  þennan áfanga en eftirtaldir nemendur tóku grunnpróf að þessu sinni:

Herborg Gróa Hannesdóttir í píanóleik

Emelía Íris Benediktsdóttir í einsöng  (hún lauk einnig grunnprófi í píanóleik fyrr á þessari önn)

Ísey Lilja Waage í einsöng

Valdís Freyja Magnúsdóttir í einsöng 

Anna Sveinborg Guðjónsdóttir í þverflautuleik

Sonja Líndal Þórisdóttir í þverflautuleik