Perlað af krafti

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur leggur leið sína á Hvammstanga til að perla föstudaginn 31.maí.
- Opið hús milli kl. 16:00 og 19:00 og geta allir komið og lagt hönd á perlu í lengri eða skemmri tíma.
- Staðsetning: Grunnskólinn Hvammstanga (matsalur)
- Ein helsta fjáröflunarleið Krafts er sala perluarmbanda með áletruninni „Lífið er núna“. Armböndin eru eingöngu framleidd af sjálfboðaliðum sem leggja félaginu lið með því að bjóða fram krafta sína.
- Tilvalið tækifæri til að eiga skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum og um leið leggja góðu málefni lið.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
Það er um að gera að fylgjast með Facebook viðburðinum okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar.
Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum því við viljum sjá sem flesta 🙂  Þú getur skoðað viðburðinn með því að ýta hér.
Hlökkum til að sjá ykkur 🧡