- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar til umsóknar tímabundnar og ótímabundnar stöður stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 100% starfshlutfall frá 15. ágúst 2026.
Leitað er eftir metnaðarfullum, jákvæðum og liprum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa í kraftmiklu og skapandi skólaumhverfi.
Stuðningur og gæsla við nemendur í námi og leik innan skólastarfsins.
Gæsla í frímínútum.
Samstarf við kennara og aðra starfsmenn skólans.
Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið námi sem stuðningsfulltrúi eða hafi aðra menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af vinnu með börnum er mikill kostur.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.
Frumkvæði í starfi, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Stundvísi og áreiðanleiki.
Gott vald á íslensku er skilyrði.
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vakin er athygli á því að samkvæmt lögum verður óskað eftir sakavottorði áður en til ráðningar kemur.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2026.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi berist rafrænt á netfangið: eydisbara@skoli.hunathing.is
Kirkjuvegi 1
|
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is