Lausar stöður skólaárið 2025-2026

Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar til umsóknar tímabundnar og ótímabundnar stöður við kennslu og í stoðþjónustu. Um er að ræða 75-100% störf.

Grunnskóli Húnaþings vestra leitar að metnaðarfullu, sjálfstæðu og drífandi starfsfólki með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.

Í Grunnskóla Húnaþings vestra stunda um 125 nemendur nám við 1.-10.bekk. Lögð er áhersla á hvetjandi skólabrag og unnið eftir uppeldisstefnunni Jákvæðum aga. Starfsmenn skólans eru um 40 talsins.

Gott samstarf er milli skólastiga í Húnaþingi vestra og við tónlistarskóla. Árið 2022 var tekin í notkun ný 1200fm viðbygging við skólann sem skapaði enn betri umgjörð um skólastarfið og býður upp á fleiri þróunarmöguleika en áður. Tónlistarskóli Húnaþings vestra er staðsettur í sama húsnæði og grunnskólinn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjónarkennsla

  • Textílmennt

  • Tónmennt
  • Sérkennsla

Um er að ræða 75 - 100% störf og laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Skólinn leggur áherslu á teymiskennslu, jákvæðan aga, byrjendalæsi og leiðsagnarnám.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari

  • Reynsla af grunnskólastarfi æskileg

  • Ánægja af því að starfa með börnum

  • Þekking og reynsla á byrjendalæsi og PALS

  • Þekking og reynsla á jákvæðum aga

  • Hæfni til að tjá sig á íslensku í ræðu og riti 

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

 

Einnig eru lausar til umsóknar stöður stuðningsfulltrúa í mismunandi stöðugildi. 

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Við ráðningu skal veita heimild til að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsókn sendist á eydisbara@skoli.hunathing.is 

Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eydís Bára Jóhannsdóttir, skólastjóri, í síma 455-2400, netfang: eydisbara@skoli.hunathing.is 

Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2025