Frábær árangur í Svakalegu lestrarkeppninni

Nemendur okkar í 1.–7. bekk tóku nýverið þátt í Svakalegu lestrarkeppninni sem stóð yfir í þrjár vikur. Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk um land allt og er markmið keppninnar að auka lestraránægju barna.

Skólinn okkar var einn af 108 skólum víðsvegar um landið sem tóku þátt og var lestrargleðin í fyrirrúmi allan tímann.

Nemendur okkar stóðu sig gríðarlega vel en skólinn hafnaði í 5. sæti á landsvísu.

Á þessum þremur vikum lásu nemendur í 1.–7. bekk að meðaltali 985 mínútur á nemanda sem verður að teljast frábær árangur.

Við erum ótrúlega stolt af flottu og duglegu lestrarhestunum okkar og viljum jafnframt þakka foreldrum og forráðamönnum kærlega fyrir þeirra þátttöku og stuðning í keppninni. Þá er bara að halda áfram að lesa!!!