Frábær árangur í Fiðring á Akureyri

Nemendur í valgreininni „Fiðringur“ skelltu sér til Akureyrar í vikunni til að taka þátt í hinni árlegu hæfileikakeppni Fiðringi á Norðurlandi en Fiðringur er hæfileikakeppni fyrir nemendur í 8.-10. bekk í anda Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á suðurlandi. Keppnin fór fram í menningarhúsinu Hofi miðvikudaginn 6. maí og var mikil gleði og stemning í hópnum.

Þetta er í annað skiptið sem skólinn tekur þátt í Fiðring á Norðurlandi, en eins og eflaust einhverjir muna fórum við alla leið í fyrra og hrepptum fyrsta sætið. Þetta árið kom okkar fólk ekki tómhent heim því hópurinn okkar vann Íslenskuverðlaun keppninnar fyrir atriði sitt og er það mikill heiður og staðfesting á vandaðri vinnu nemenda við textagerðina.

Atriðið þetta árið bar heitið „Á milli tveggja heima“. Þar fylgdum við sama einstaklingnum í gegnum þrjú ólík afmæli; 6 ára, 15 ára og 17 ára.

Atriðið snerti á mikilvægum þemum sem margir unglingar þekkja:

  • Löngunin til að eldast: Þegar maður er barn og getur ekki beðið eftir að verða unglingur.

  • Söknuður í einfaldleikann: Þegar maður er orðinn unglingur og áttar sig á því hve áhyggjulaus barnæskan var.

  • Togstreitan: Hvernig barnið og unglingurinn togast á í manni og skilja mann eftir „á milli tveggja heima“.

 

Fyrir þá sem misstu af keppninni eða vilja upplifa stemninguna aftur, þá er hægt að nálgast upptöku af streyminu á vef UngRÚV

 

Atriði Grunnskóla Húnaþings vestra hefst á mínútu 56:00.

 

Alls tóku níu skólar víðsvegar af Norðurlandi þátt í keppninni og mátti sjá metnað nemenda skína í gegn í atriðunum. Við erum að sjálfsögðu að springa úr stolti yfir nemendum okkar, framkomu þeirra og þeim miklu hæfileikum sem þeir búa yfir.

 

Við óskum Borgarhólsskóla á Húsavík innilega til hamingju með sigurinn í Fiðring á Norðurlandi árið 2026.