- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Tónlistarskólinn hélt þrenna vortónleika þar sem langflestir nemendur skólans komu fram. Það er mikill sigur að stíga á svið og spila eða syngja fyrir fullan sal af fólki. Nemendur stóðu sig frábærlega að vanda. Við viljum þakka öllum sem gáfu sér tíma til að koma á tónleikana. Þetta er mikilvægur þáttur í lok skólaársins hjá tónlistarskólanum.
Þessa dagana erum við að undirbúa 6 nemendur sem munu þreyta grunnpróf föstudaginn 30. maí. En það eru óvenju margir nemendur á sama tíma að fara í grunnpróf frá okkur að þessu sinni og erum við mjög stollt af því.
Innritun hefur gengið vel og ekki mörg pláss laus, þeir sem vilja sækja um í tónlistarskólann fyrir næsta skólaár er bent á að senda umsókn á netfangið: palinaf@skoli.hunathing.is
Hikið ekki við að hafa samband í tölvupósti eða hringja ef einhverjar vangaveltur eru varðandi nám við tónlistarskólann.
Síminn hjá Pálínu skólastjóra er: 8677159
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is