Erasmus+ fréttir

Þann 3. maí sl. flugum við stelpurnar, ásamt Sólrúnu og Söru, út til Tyrklands til að taka þátt í Erasmus+ verkefni. Flugið var langt og þreytandi og fórum við beint upp á hótel þegar við lentum í Istanbul. Þar stoppuðum við í einn dag þar sem við fengum að gera það sem við vildum áður en við keyrðum til Balikesir. Við vorum í Balikesir í fimm daga og gerðum við þar margt fræðandi og skemmtilegt. Við vorum t.d. að vinna með forritið Unreal engine að leika okkur við að búa til tölvuleik sem væri lýsandi fyrir loftslagsbreytingar og hvernig þær skaða heiminn okkar. Markmið þessara ferðar var að skoða hvernig við getum á mismunandi hátt miðlað til fólks mikilvægi þess að hugsa um jörðina og bregðast við fjölmörgum vandamálunum tengdum  loftslagsbreytingum, t.d. með stafrænni tækni. Við hittum margt skemmtilegt og ólíkt fólk sem vann með okkur þessa viku en vorum þó ekki eingöngu að vinna allan tímann. Einn daginn fórum við t.d. í heimsókn í Mount Ida þjóðgarðinn þar sem við skoðuðum fallega náttúrunna og höfðum það notalegt áður en við fórum svo út á strönd við sólarlag. En eftir langa viku þurftum við því miður að kveðja þennan æðislegan hóp með von um að sjá þau aftur. 

 

Við erum óendanlega þakklátar fyrir að hafa fengið þetta tækifæri til að leggja okkar framlag í það að fræða fólk um loftslagsbreytingar. Þetta er ekki tækifæri sem allir geta fengið og var þetta frábær upplifun og munum við muna eftir þessu alla okkar ævi. Menningin í Tyrklandi er gjör ólík íslenskri menningu og var það mjög gaman að sjá og upplifa hana. 

 

Bríet Anja, Emelía Íris, Herborg Gróa og  Ronja Dís.