- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Byggingarnefnd hefur unnið með tillögu VA arkitekta sem valin var eftir samanburðartillögukeppni um viðbyggingu við Grunnskóla Húnaþings vestra sem jafnframt myndi hýsa Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Fundað hefur verið reglulega síðan í sumar og unnið með áskoranir sem snúa að rýmisþörf tónlistarskólans og legu viðbyggingar á lóð skólans, ásamt fjölmörgum öðrum þáttum sem snúa að undirbúningi og hönnun viðbyggingar. Í framhaldi af þessari greiningarvinnu þarf að halda áfram að vinna útfærslu byggingarinnar og vinna að lausnum til framtíðar, skilgreina þarf rýmisþörf tónlistarskóla betur og gæta að góðu aðgengi milli skóla og íþróttamiðstöðvar.
Nýlega var fundað með VA arkitektum og þessum áskorunum lýst. VA arkitektar eru áhugasamir að vinna áfram að breytingum á tillögunni í ljósi þessara áskorana, enda sé mikilvægt að vanda til alls undirbúnings í svona stórri framkvæmd.
Bygginganefnd mun á komandi vikum vinna að lausnum og nánari útfærslu viðbyggingarinnar.
Fyrstu tillögu má sjá á heimasíðu VA arkitekta.
http://vaarkitektar.is/samkeppnir/
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is