Velkomin heim - leiksýning

Vala Rún fæddist á hrísgrjónaakri í Taílandi um miðja 20. öldina. Hún veit ekki hvenær hún á afmæli, bara að hún fæddist einhvern tímann á monsúntímabilinu. Hún kynntist aldrei föður sínum, missti móður sína sex ára og var meira og minna á eigin vegum eftir það. Árið 2019 stendur dóttir hennar á leiksviði í Þjóðleikhúsinu, fyrsta konan af asískum uppruna sem útskrifast af leikarabraut Listaháskóla Íslands.

Sýning verður fyrir nemendur 8. - 10. bekkjar kl. 13:00 í Félagsheimili Hvammstanga mánudaginn 9. september.

Í leiksýningunni Velkomin heim! segir leikkonan María Thelma Smáradóttir sögu móður sinnar, fjallar um líf hennar í Taílandi og reynslu hennar þegar hún kom fyrst til Íslands fyrir 26 árum.

Völu Rún fannst hún aldrei eiga heima neins staðar í Taílandi. Á Íslandi leið henni eins og hún væri komin heim, og þó þekkti hún hér engan fyrir og talaði ekki tungumálið. Hvað er það að eiga heima einhvers staðar? Hvað er heimaland? 

María Thelma Smáradóttir var tilnefnd til Grímunnar í flokknum Sproti ársins fyrir Velkomin heim.

Viðtal við Maríu má sjá hér