Veiðiferð í Miðfjarðarvatn

Nemendur í valhóp fóru í veiðiferð í Miðfjarðarvatn í gær. Þar veiddu þau með stöng og í net. Allir fiskarnir sem komu lá land voru í netunum en margir nemendur misstu fisk á stönginni, að þeirra sögn mjög stóra. Það var mikil veiði og stór hluti tímans fór í aðgerð og margir fóru með flök heim eftir daginn.