- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Tvær 80% stöður stuðningsfulltrúa eru lausar til umsóknar í Grunnskóla Húnaþings vestra.
Um er að ræða stöður til 3 mánaða sem framlengjast miðað við þörf og dvöl viðkomandi nemenda í skólanum, að hámarki út skólaárið. Ein staða á yngsta stigi og önnur á unglingastigi.
Helstu verkefni og hæfnikröfur
Stuðningur og gæsla við nemendur í skóla og frístundastarfi.
Gæsla í frímínútum.
Jákvæðni, lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum eru nauðsynleg.
Reynsla af vinnu með börnum æskileg.
Hæfni til að tjá sig á íslensku í ræðu og riti skilyrði.
Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi.
Umsóknarfrestur er til 3. desember 2020.
Ráðningartími er frá 4. janúar 2021
Hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á að vinna með börnum er skilyrði.
Upplýsingar um umsagnaraðila.
Starfsferilsskrá.
Þeir sem hafa áður sent inn umsókn um starf í skólanum geta vísað til hennar í stað þess að senda nýja ef nýjar upplýsingar þurfa ekki að koma fram.
Umsóknir skulu berast á netfangið siggi@skoli.hunathing.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is