Tímabundnar stöður stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Húnaþings vestra

Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar til umsóknar tímabundnar stöður stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 80 -100% starfshlutfall og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.

Leitað er eftir metnaðarfullum, jákvæðum og liprum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa í kraftmiklu og skapandi skólaumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stuðningur og gæsla við nemendur í námi og leik innan skólastarfsins.

  • Gæsla í frímínútum.

  • Vinna í frístund

  • Samstarf við kennara og aðra starfsmenn skólans.

Hæfnikröfur:

  • Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið námi sem stuðningsfulltrúi eða hafi aðra menntun sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af vinnu með börnum er mikill kostur.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.

  • Frumkvæði í starfi, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.

  • Stundvísi og áreiðanleiki.

  • Gott vald á íslensku er skilyrði.

Frekari upplýsingar:

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vakin er athygli á því að samkvæmt lögum verður óskað eftir sakavottorði áður en til ráðningar kemur.

Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2026.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi berist rafrænt á netfangið: eydisbara@skoli.hunathing.is