Þjónusta og framreiðsla

Undanfarnar vikur hafa nokkrir nemendur grunnskólans verið í valgreininni Þjónusta og framreiðsla. Nemendur eru áhugasamir og hafa staðið sig mjög vel eins og sést á myndunum af borðunum sem þau skreyttu eftir þema sem þau völdu sjálf. Þar gat  á að líta Borð Páskanna, Borð íþróttaþjálfarans, Svaninn og Borð Valentínusar.

Upprennandi þjónar hér á ferð!