Sumarleikhús æskunnar

Í sumar stendur Handbendi Brúðuleikhús fyrir fyrsta Sumarleikhúsi æskunnar í Húnaþingi vestra. Þetta 7 vikna verkefni er opið öllum börnum og ungmennum frá 7-18 ára að aldri.

Sumarleikhús æskunnar stendur yfir frá 18. júní – 24. ágúst, er leikhús- og leiklistarsmiðja, og fer fram tvisvar í viku.

Ákveðin verkefni vinna þátttakendur allir saman, en munu mestmegnis vinna með fólki á svipuðum aldri að uppsetningu leikverka, en sýningarnar munu hver fyrir sig henta aldurshópnum sem þær flytur, og sinna þörfum, áhuga, og styrkeikum hvers hóps fyrir sig.

Á meðan að á verkefninu stendur læra þátttakendur um leikhús, kynna sér mismunandi leikhústækni, og setja upp sýningar sem sýndar verða almenningi við lok verkefnisins. Fagmenntað fólk mun vinna með þátttakendum að listsköpuninni. 

Sýnt verður á endurbættu sviði Félagsheimilis Hvammstanga, en þar er nú kominn upp nýr og góður tæknibúnaður. Fagmanneskja í leikhúshljóði og -ljósi aðstoðar þátttakendur við sýningarnar og mun kynna hverja þá sem áhuga kunna að hafa fyrir grunnatriðum ljós- og hljóðhönnunar, ásamt almennri nálgun á tækniatriði leikhússins.

Hver tími verður 3 klukkustunda langur, að pásum meðtöldum. 

Þáttökugjald er 35.000 kr, í heild og allur kostnaður við sýninguna er þar innifalinn.​
https://www.sumarleikhus.com/
Skráning er nú hafin hér.