Styrkjum Velferðarsjóðinn

Gjafa- og starfsmannasjóður Grunnskóla Húnaþings vestra hefur ákveðið að styrkja Velferðarsjóð Húnaþings vestra núna fyrir jólin þar sem ekki hefur verið mögulegt að stefna fólki saman til skemmtunar á COVID tímum. 

 

Við skorum á önnur fyrirtæki og stofnanir í Húnaþingi vestra að styrkja velferðarsjóðinn til að létta undir með þeim sem minnst hafa um hátíðirnar. 

 

Starfsfólk Grunnskóla Húnaþings vestra