- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Tvær stöður skólaliða í ræstingu eru lausar til umsóknar í Grunnskóla Húnaþings vestra. Um er að ræða 100% starf og 50% starf frá 1. ágúst 2021.
Umrædd störf eru aðallega í ræstingum á sameiginlegu húsnæði grunn- og tónlistarskóla en einnig er gert ráð fyrir að viðkomandi geti sinnt störfum við frímínútnagæslu, frístundastarf og annarra tilfallandi starfa undir verkstjórn umsjónarmanns skólamannvirkja.
Gert er ráð fyrir að daglegur vinnutími fyrsta starfsárið verði
Fyrir fullt starf 11:00 - 19:00
Fyrir hálft starf 15:00 - 19:00
Möguleiki er að daglegur vinnutími breytist ef þrif geta farið fram að stærri hluta á kennslutíma í samráði við viðkomandi starfsmenn.
Eftir fyrsta starfsárið er gert ráð fyrir að störfin færist alfarið yfir á dagvinnutíma og báðir aðilar sinni þrifum og gæslu á tímabilinu 8:00 - 16:00. Aðalhreingerning fer fram þegar kennsla fer ekki fram, s.s. í jólaleyfi, páskaleyfi og á sumrin.
Helstu verkefni og hæfnikröfur
Þrif og aðalhreingerning
Gæsla nemenda í skóla og frístundastarfi.
Áhugi á að vinna með börnum er skilyrði.
Jákvæðni, lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum eru nauðsynleg.
Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2021
Ráðningartími er frá 1. ágúst 2021
Upplýsingar um umsagnaraðila.
Starfsferilsskrá.
Umsóknir skulu berast á netfangið siggi@skoli.hunathing.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is