Starfsdagur og viðtalsdagur

Starfsdagur verður í grunnskólanum föstudaginn 12. mars. Frístund opnar ekki fyrr en klukkan 10:00 þann dag vegna starfsmannafundar.

Mánudaginn 15. mars er viðtalsdagur til að fylgja eftir námi nemenda. Kennarar munu meta hvort þörf sé á viðtali annað hvort í gegnum síma eða með því að boða foreldra og/eða nemendur inn í skólann. Foreldrar geta einnig sjálfir óskað eftir viðtali hvort sem er við umsjónarkennara eða aðra kennara.  

Frístund er opin mánudaginn 15. mars kl. 8:00 - 16:00