Starfsdagur í Órion 28. ágúst

Kæru foreldrar og forráðamenn

Nú fer að líða að Órion hefji starfsemi sína þetta haustið og hlakkar okkur mikið til ☺

Seinasta haust prufuðum við í fyrsta skipti að hafa starfsdag fyrir 8. – 10. bekk í nokkra klukkutíma þar sem við fengum krakkana til að til hjálpa okkur að skipuleggja og koma með hugmyndir af starfi vetrarins. Þar unnu þau í hópum, fóru í leiki, við fengum okkur pizzu og skelltum okkur í sund. Það má með sanni segja að þessi starfsdagur er kominn til að vera þar sem hann tókst mjög vel og voru krakkarnir ánægðir með hann og þjappaði starfið hópnum saman fyrir veturinn.☺

Nú erum við búin að skipuleggja starfsdaginn þetta haustið og verður hann laugardaginn 28. ágúst nk. frá kl 17 – 21 upp í íþróttahúsi og fer skráning fram á netfangið johannahelga1983@gmail.com og er seinasti skráningadagur mánudaginn 23. ágúst og kostar þetta 500 kr.

                                     Við hvetjum alla til að mæta og hafa gaman með okkur ☺ 

Bestu kveðjur

starfsfólk Órion