Starf stuðningsfulltrúa laust til umsóknar

Við Grunnskóla Húnaþings vestra er laust tímabundið 80% starf stuðningsfulltrúa. Viðkomandi þarf að geta hafið störf þann 18. nóvember 2019 og starfað til 31. maí 2020

Við leitum að einstaklingi með:

  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Gott vald á íslensku skilyrði

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi Samtöðu og SNS. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar um skólastarfið má finna www.grunnskoli.hunathing.is.

Umsóknafrestur er til 3. nóvember 2019. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið siggi@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri í síma 455-2900 eða í netfanginu siggi@hunathing.is.