Staðan tekin vegna veðurs 20. febrúar 2020

Uppfært kl. 14:44

Frístund er opin í dag til kl. 16:00 eins og vant er.

Uppfært kl. 14:35

Björgunarsveitin ætlar að keyra á undan skólabílum en skólabílarnir fara ekki fyrr en kl. 15:00. 

Foreldrar barna á Hvammstanga eru beðnir um að  sækja nemendur á yngsta og miðstigi í skólann. (1. - 7. bekk)

---

Nú er í skoðun hvort foreldrar verða beðnir um að sækja nemendur vegna veðurs. Einnig er verið að hafa samband við skólabílstjóra hvernig þeir meta stöðuna, hvort farið verður á hefðbundum tíma eða heimferð frestað. Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með heimasíðu. 

Ef foreldrar verða beðnir um að sækja nemendur verður sent SMS.