Söngvarakeppnin 2020

Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra verður haldin miðvikudaginn 15. janúar 2020.

 

Þeir sem vilja taka þátt sendi tölvupóst til Valdimars þar sem fram kemur nafn, bekkur og lag,

valdihg@gmail.com í síðasta lagi 18. desember 2019.  Ekki verður tekið á móti skráningum eftir þann tíma.

Sérstök verðlaun verða fyrir frumlegasta atriðið í hvorum flokk (dæmt fyrir búninga, skemmtun, spaug og spé)

Nemendur í 4. - 10. bekk geta tekið þátt.  Aðeins er keppt í hvorum flokki ef atriði eru 3 eða fleiri. 

Sama lagið má ekki syngja oftar en einu sinni, sá sem fyrstur skráir sig með lag fær að syngja það, þeir sem á eftir koma verða þá að velja annað lag.

Sigurvegari í eldri flokki má keppa í Samfés fyrir hönd félagsmiðstöðvar, ekki skylda.

Samkvæmt ákvörðun nemendaráðs er ekki skylda að vinningslag keppi á Samfés. Sá sem sigrar söngvarakeppnina má keppa á Samfés en þarf þess

ekki. Velji sigurvegari að keppa ekki á Samfés, flyst möguleikinn til 2. sætis og svo koll af kolli. Ef enginn af keppendum vilja keppa á Samfés velur

félagsmiðstöð sjálf lag til flutnings.

Einnig áveðið að lágmarks þátttaka verði 3 atriði í hvorum flokk (eldri og yngri).

Nemendur mega keppa í fleiri en einu atriði með öðrum. Nemendur eru hvattir til að hafa hópatriði.

Valdimar Gunnlaugsson er umsjónarmaður keppninnar.