- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Skólabyrjun 2019
Skólasetning Grunnskóla Húnaþings vestra verður fimmtudaginn 22. ágúst kl 15:00 í Hvammstangakirkju. Að lokinni skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum sínum til stofu og taka á móti stundaskrám. Foreldrar eru hvattir til að fylgja nemendum í stofur til að fá upplýsingar hjá kennurum um skólastarfið. Ekki verður skólaakstur á skólasetningardaginn. Nemendur og foreldrar í 1. bekk fá viðtalstíma fyrir skólasetningu hjá umsjónarkennara.
Stundatöflur eru aðgengilegar á mentor.is frá og með 22. ágúst. Nemendur í 8. – 10. bekk þurfa að skoða sínar töflur vel, hverja lotu fyrir sig þar sem þær breytast eftir lotum.
Kennsla hefst hjá 1. - 7. bekk föstudaginn 23. ágúst.
Kennsla í valgreinalotum hefst hjá 8. – 10. bekk 23. ágúst. Skoðið stundatöflu nemenda vel þar sem hún segir til um í hvaða valgrein nemendur eru á hvaða tíma í Lotu 1.
Þeir sem þurfa nánari leiðbeiningar hafi samband við umsjónarkennara eða skólastjórnendur.
Nemendur sem skráðir eru í starfsnám eru ekki skráðir í skólaakstur og mat. Ef óskað er eftir mat skal hafa samband við ritara skólans á netfangið grunnskoli@hunathing.is eða í síma 4552900. Ef óskað er skólaaksturs skal biðja um það hjá viðkomandi bílstjóra.
Ekki verður hægt að óska eftir breytingum á vali. Valið á þessu skólaári er mun fjölbreyttara en verið hefur en þó er ljóst að einhverjir nemendur hafa mögulega ekki náð að komast í allt það val sem óskað var sérstaklega eftir. Valloturnar núna eru einnig mun styttri en þær hafa verið og nemendur því ekki í sama valfaginu heila önn.
Hagnýtar upplýsingar
Námsgögn
Skólinn sér um öll námsgögn fyrir nemendur í 1. - 10. bekk þeim að kostnaðarlausu (stílabækur, ritföng, reiknivélar o.fl.) Foreldrar þurfa samt sem áður að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði ásamt ritföngum til afnota heima fyrir. Athugið að nemendur á unglingastigi útvega sjálfir skriffæri og það sem þarf í pennaveskið.
Skólaakstur
Á heimasíðu skólans má finna upplýsingar um tímatöflur skólabifreiða. Þær eru uppfærðar um leið og bílstjórar hafa sent inn nýjar tímatöflur. Skólabílstjórar hafa samband við heimili áður en akstur hefst um nánara fyrirkomulag fyrir nýja nemendur og við aðra ef um breytingar er að ræða frá fyrra ári. Ef eitthvað er óljóst er bent á að hafa samband við viðkomandi skólabílstjóra.
Starfsfólk og bekkir
Eydís Bára Jóhannsdóttir hefur tekið við starfi aðstoðarskólastjóra í vetur og hægt er að hafa samband við hana á netfangið eydisbara@hunathing.is.
Helga Sigurhansdóttir hefur verið ráðin ritari við skólann. Fyrirspurnir, tilkynningar og veikindi tilkynnist á netfangið grunnskoli@hunathing.is.
Skipulag innan skólans verður með þeim hætti að 2. bekkur verður með stofu á 3. hæð, 1. , 3. og 5. bekkur á 2. hæð og 6. – 10. bekkur á jarðhæð, 8. – 10. bekkur í norðurálmu. Tveir 10. bekkir verða næsta vetur vegna fjölda nemenda. Umsjónarkennarar verða: 1. bekkur – Lára Helga Jónsdóttir, 2. bekkur – Laura Ann Howser, 3. bekkur – Ellý Rut Halldórsdóttir, 4. bekkur – Þorbjörn Gíslason, 5. bekkur – Margrét Hrönn Björnsdóttir, 6. bekkur – Kristín Ólöf Þórarinsdóttir, 7. bekkur – Guðrún Helga Magnúsdóttir, 8. bekkur – Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir, 9. bekkur – Ásgeir Hannes Aðalsteinsson, 10. bekkur SÓ- Sara Ólafsdóttir, 10. bekkur SR – Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir. Búið er að manna skólann fyrir veturinn og verður starfsfólk skólans eftirfarandi:
Svefn
Mikilvægt er að nemendur fái nægan svefn og hvíld. Séu þau ekki útsofin og hvíld geta þau ekki notið kennslunnar né sinnt því starfi sem fram fer í skólanum. Þau verða pirruð og þreytt og námsefni fer fyrir ofan garð og neðan.
Hæfilegur svefntími er talinn
Skápar fyrir nemendur
Nemendur í 7. – 10. bekk fá úthlutað nemendaskáp frá skólabyrjun til skólaloka. Nemandinn útvegar sjálfur lás til að læsa sínum skáp. Nemandi ber sjálfur ábyrgð á sínum lás.
Notkun reiðhjóla, hlaupahjóla, hjólabretta og línuskauta
Skólinn ber ekki ábyrgð á hjólum og hlaupahjólum sem nemendur koma á í skólann. Öll mál sem tengjast skemmdum á reiðhjólum/ hlaupahjólum verða foreldrar að gera upp sín í milli. Ekki er heimilt að geyma hjól/ hlaupahjól inni í skólanum. Öll notkun á þessum tækjum er bönnuð í frímínútum. Óheimilt er að mæta á línuskautum, hjólabrettum og rúlluskóm í skólann. Nemendur mega ekki koma á hjólum í skólann nema með hjálm.
Óskilamunir
Í skólanum safnast mikið af óskilamunum, þar á meðal vandaðar og óslitnar flíkur af yngri jafnt sem eldri nemendum. Ef fatnaður eða aðrar eigur nemenda skila sér ekki heim geta foreldrar komið og fengið að skoða óskilamuni. Mikilvægt er að merkja allar flíkur nemenda, skófatnað jafnt sem annað. Viku eftir skólaslit er óskilamunum sem ekki hafa verið sóttir komið til Rauða krossins
Frístund
Börn í 1.- 4. bekk skólans eiga kost á að dvelja í Frístund eftir skólatíma dag hvern til kl. 16:00. Foreldrar nemenda í 5. og 6. bekk geta einnig sótt um vistun innan starfstíma skóla í frístund ef fjöldi leyfir. Frístund starfar einnig alla aðra virka almanaksdaga ársins (nema viðtalsdaga, á skólaslitum, skólasetningu og v. endurmenntunar) frá kl. 8:00 – 16:00. Sumarfrí Frístundar er sambærilegt og sumarfrí leikskólans Ásgarðs ár hvert.
Þá daga sem skóli starfar ekki innan skóladagatals (s.s. starfsdaga, jólafrí og páskafrí) þarf að láta umsjónarmann Frístundar vita með 3 daga fyrirvara um vistun þessa daga. Enginn skráist sjálfkrafa í vistun þessa daga og ef enginn er skráður er Frístund lokuð.
Skrá þarf börn í Frístund fyrir allan veturinn rafrænt á heimasíðu skólans sem tilgreinir hvaða daga á að nota. Börn geta ekki byrjað í Frístund fyrr en skráningarblaði hefur verið skilað. Vistun í frístund miðast við mánaðamót, breytingar þurfa að berast fyrir 15. hvers mánaðar til þær taki gildi 1. mánaðar þar á eftir. Í skólabyrjun að hausti geta nemendur komið inn í Frístund með litlum fyrirvara.
Frístund utan starfstíma skóla á sumrin þarf að skrá sérstaklega samkvæmt auglýsingu.
Greitt er fyrir Frístund samkvæmt gjaldskrá Húnaþings vestra
Eftir sumarfrí Frístundar og leikskóla eiga verðandi nemendur í 1. bekk skólans rétt á vistun.
Skóladagatal
Skóladagatal skólans má nálgast á heimasíðu skólans. Skólaárinu er skipt niður í 7 lotur sem merktar eru á skóladagatali. Við upphaf hverrar lotu má gera ráð fyrir breytingum á stundaskrám, þær breytingar birtast á mentor.is. Það er því mikilvægt að foreldrar skoði stundaskrár, námsáætlanir og heimavinnu á mentor mjög reglulega, nemendur í 8. – 10. bekk þurfa að nota mentor.is a.m.k. daglega.
Mötuneyti
Gert er ráð fyrir því að allir nemendur skólans fái morgunhressingu og hádegismat í skólanum og foreldrar greiða fyrir það samkvæmt útgefinni gjaldskrá ár hvert. Þeir sem vilja annað fyrirkomulag láti skólastjórnendur vita. Mataráskrift er ekki felld niður (vika eða meira) nema foreldrar/starfsmenn óski þess með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is