Skipulag kennslu og frístundastarfs frá og með 17. mars

Kennsla

  • Nemendahópar mega ekki blandast.

  • Skóli opnar kl. 08:00  (ekki 07:45) – inngangar merktir fyrir ákveðna nemendahópa.

  • Svæði skilgreind í skólanum þar sem nemendur fara ekki á milli. Eftirtalin svæði eru í skólanum:

    • Suðurgangur og 1. hæð.

    • 2. og 3. hæð.

  • Kennsla í bekkjarstofum frá 8:20 – 12:30

  • Nemendur í 1. – 5 bekk gangi inn að austan.

  • 6. og 7. bekkur gangi inn að sunnan.

  • 8. – 10. bekkur gangi inn að vestan.

  • Morgunhressing í formi ávaxta og vatns í skólanum og neytist í kennslustofum. Nemendum er heimilt að taka með sér ávaxtasafa og brauð í nesti.

  • Allir nemendur fá einfaldan hádegismat áður en þeir fara heim.

  • Nemendur séu eingöngu í sinni stofu.

  • Íþróttatímar, list- og verkgreinatímar falla niður - kenndir í bekkjarstofu.

  • Ekki komast allir nemendur út í frímínútur á hverjum degi, útiveru verður skipt milli bekkja til að hópar blandist ekki. Kennarar hvattir til að gæta þess að allir fái útiveru með tilliti til veðurs.

  • Nemendur hvattir til að koma með vatnsbrúsa.

  • Símareglur felldar úr gildi fyrir 6. – 10. bekk áður en kennsla hefst og í frímínútum.

 

Skólaakstur

  • Skólaakstur fellur niður fyrir leikskólabörn.

  • Skólaakstur verður næstum eðlilegur ef undanþága fyrir leiðir 1 og 2 fást. Verið er að vinna í útfærslum á leiðum 1 og 2.

  • Skólabifreiðar skulu sótthreinsaðar á milli ferða.

 

Frístund

  • Frístund mun starfa fyrir nemendur sem eru skráðir frá kl. 12:30 - 16:00. 

  • Frístund mun starfa á 2. hæð og skipt eftir bekkjum. Hver bekkjardeild verður í frístundastarfi í sinni stofu.

  • Foreldrar sæki nemendur í frístund á 2. hæð og noti inngang að austan.

  • Þeir foreldrar sem geta sleppt því að nota frístund eru hvattir til að gera það til að minnka álag á frístundina.

 

Sameiginleg rými og skipulag

  • Nemendur á unglingastigi og í 6. og 7. bekk noti salerni á 1. hæð, aðrir nemendur noti salerni á 2. hæð.

  • Allar heimsóknir í skólann eru bannaðar nema með sérstöku leyfi skólastjórnenda. Bannið nær ekki til foreldra  sem sækja börn sín til skóla.

  • Teymisfundum skal frestað eða þeir haldnir í síma eða öðrum fjarfundi.

  • Í lok skóladags er einum bekk hleypt út í einu af hverju svæði.

  • Sálfræðiþónusta og önnur sambærileg þjónusta fari fram í gegnum fjarfund

Allar breytingar eru birtar jafn óðum á heimasíðu og sendar í tölvupósti til foreldra.