Símalaus sunnudagur

Barnaheilll vilja vekja athygli á Símalausum sunnudegi nk. sunnudag, árlegt átak þar sem foreldrar og aðrir forráðamenn eru hvattir til þess að leggja snjalltæki frá sér í 12 klukkutíma, frá kl. 9-21. Yfirskrift átaksins er ,,Upplifum ævintýrin saman“ og er markmiðið að vekja foreldra og annað fullorðið fólk til umhugsunar um áhrif snjalltækja á samveru og nánd innan fjölskyldna.