Samræmt próf - vandamál

Flestir nemendur í 9. bekk gátu tekið samræmda prófið í íslensku núna kl. 12 en örfáir þurfa að taka prófið síðar. Þetta kemur til af tæknilegum vandamálum hjá Menntamálastofnun. Foreldrar þeirra nemenda sem ekki gátu tekið prófið hafa fengið tölvupóst um það.

Gert er ráð fyrir að prófið í fyrramálið verði með eðlilegum hætti.