Samræmdum prófum frestað

Menntamálastofnun hefur, að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið, ákveðið að fresta samræmdum könnunarprófum í stærðfræði og ensku sem vera áttu þriðjudaginn 9. mars og miðvikudaginn 10. mars. Skólar hafa val um hvenær prófin verða lögð fyrir á tímabilinu 15. - 26. mars og munum við leggja þau fyrir miðvikudaginn 17. mars (stærðfræði) og fimmtudaginn 18. mars (enska)