Samkomutakmarkanir og börn

Skólar og íþróttafélög skipuleggja sitt fyrirkomulag til að fara eftir fyrirmælum yfirvalda um  takmarkanir á skólastarfi og samkomum, þ.m.t. fjöldatakmörkunum, rýmum og grímunotkun.  

 Gott er að hafa  eftirfarandi í huga:  

• Skólafélagar sem ekki eru í sama hópi í skólastarfinu ættu ekki að vera í návígi utan  skóla.  

• Hafi börnin þroska til að fara eftir leiðbeiningum sem snúa að minni snertingu við vini  er ekki útilokað að þau geti hist í leikjum. Leikirnir mega ekki fela í sér beina snertingu,  notkun á sameiginlegum leikföngum eða búnaði sem snertur er með berum höndum.  

• Börn og ungmenni ættu ávallt að þvo sér vel um hendur bæði áður en þau hitta félaga  sína og eftir að þau koma heim.  

• Fjölskyldur ættu að hafa í huga að ef börnin umgangast mikið vini eða frændsystkini úr  öðrum skólum eða skólahópum þá verður til tenging milli hópa sem annars væru  aðskildir. Slíkt ætti að forðast eins og kostur er.  

• Fjölskyldur eru hvattar til að nýta sér tæknina til að halda góðum tengslum við ástvini  sem eru í áhættuhópum vegna COVID-19 sýkinga, eldra fólk og fólk með ákveðna  undirliggjandi sjúkdóma. 

• Einnig væri hægt að nota tækifærið að kenna börnunum að skrifa sendibréf og æfa í  leiðinni skrift, stafsetningu, virkja ímyndunaraflið og hugsa í lausnum þegar kemur að  samskiptum við ástvini okkar.  

Varðandi heimili með börn þar sem sumir eru í sóttkví en aðrir ekki: 

∙ Ef börnin hafa ekki þroska eða getu til að virða þær ráðstafanir sem eru forsenda þess  að hluti heimilisfólks geti verið í sóttkví, þarf allt heimilið að fara í sóttkví eða þeir sem  ekki eru í sóttkví að fara annað um leið og sóttkví kemur til. Mögulega gæti annað  foreldrið verið í sóttkví með barni en hitt foreldrið haldið fjarlægð. Foreldri með barni  í sóttkví þarf ekki að vera skráð í sóttkví og þarf ekki að fara í skimun til að stytta sóttkví  í 7 daga úr 14 dögum. Það er nóg að barnið sé skráð í sóttkví og fari í sýnatöku. Þetta á  t.d. við leikskólabörn í sóttkví. 

∙ Börn sem hafa þroska og getu til að sinna eigin hreinlæti (t.d. sér salerni) og halda  viðeigandi fjarlægð við foreldra (eða aðra) sem eru í sóttkví og eins við skólafélaga geta  áfram sinnt námi í skóla. T.d. ef foreldri er í sóttkví gæti leikskólabarn þurft að vera líka  í sóttkví en eldra systkini ekki. 

∙ Foreldrar stálpaðra barna í sóttkví eftir útsetningu í skóla eða tómstundum sem geta  haldið viðeigandi fjarlægð frá börnunum meðan á sóttkví stendur geta sinnt áfram  vinnu á vinnustað ef fjarvinna er ekki möguleg.

Landlæknisembættið