Nemendur í dreifbýli taki námsefni með sér heim í dag

Nemendur sem koma í skólann með skólabílum hafa verið hvattir til að taka með sér námsefni heim í dag ef ekki verður skólaakstur á morgun. Ákvörðun um skólakstur á morgun, fimmtudag, verður tekin í kvöld.

Ef ekki verður skólaakstur verða send skilaboð um nám dagsins í gegnum mentor eða bekkjarsíður, kennt verður samkvæmt stundaskrá í skólanum.