Menntastefna Húnaþings vestra-hafðu áhrif

Hafin er vinna við gerð nýrrar menntastefnu fyrir Húnaþing vestra.
Við gerð hennar gefst öllum íbúum tækifæri til að koma sínum hugmyndum og vangaveltum á framfæri.
Tilgangur menntastefnu er að ná víðtækri samstöðu um framtíðaráherslur í skóla- og frístundastarfi í Húnaþingi vestra og skerpa á forgangsröðun mikilvægustu umbótaverkefna.
Lögð er áhersla á að ná fram viðhorfum og hugmyndum allra hagsmunaaðila í skólastarfi við mótun menntastefnu og áhersluþátta hennar.
Endilega gefðu þér tíma og sendu inn þínar ábendingar, þær skipta máli. Smellið hér til að taka þátt.