Laus störf við Grunnskóla Húnaþings vestra

Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar stöður kennara, stuðningsfulltrúa og í matsal. Um er að ræða 60 – 80% störf.

  • Umsjónarkennari á unglingastigi  
  • Myndmenntakennari
  • Tímabundin staða umsjónarkennara á miðstigi
  • Tímabundin staða sérkennara

 

  • Tímabundnar stöður stuðningsfulltrúa
  • Tímabundin staða skólaliða
  • Tímabundin staða starfsmanns í matsal

 

Eldri umsóknir um störf stuðningsfulltrúa, skólaliða og í matsal óskast endurnýjaðar.

Við leitum að einstaklingum með:

  • Tilskilda menntun.
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileika
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi

 

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar um skólastarfið má finna á www.grunnskoli.hunathing.is

Umsóknafrestur er til 12. júní 2019. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skal berast rafrænt á grunnskoli@hunathing.is.

Umsækjendur skili undirrituðu eyðublaði um heimild til öflunar upplýsinga úr sakaskrá með umsókn sinni. Eyðublaðið má nálgast á heimasíðu skólans undir flipanum EYÐUBLÖÐ.

Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri grunnskóla í síma 455-2900 / 862-5466.