- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Laus er til umsóknar 80% staða ritara við Grunnskóla Húnaþings vestra. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi þann 12. ágúst 2024.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn skrifstofustörf
Símaþjónusta, póstafgreiðsla, ljósritun
Móttaka þeirra sem eiga erindi á skrifstofu skólans
Skráningar í mentor
Pantanir fyrir skólann
Skjalavistun
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun og/eða reynsla á sviði skrifstofustarfa
Þekking og reynsla á jákvæðum aga
Hæfni til að tjá sig á íslensku í ræðu og riti
Góð almenn tölvukunnátta
Færni í að sinna fjölbreyttum verkefnum.
Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Við ráðningu skal veita heimild til að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Umsókn sendist á eydisbara@skoli.hunathing.is
Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eydís Bára Jóhannsdóttir, skólastjóri, í síma 455-2400, netfang: eydisbara@skoli.hunathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2024
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is