- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Laus eru til umsóknar tvö tímabundin störf í stoðþjónustu Grunnskóla Húnaþings vestra fyrir skólaárið 2021-2022.
Um er að ræða tvö 50-60% störf.
50-60% starf sérfræðings í stoðþjónustu til 31. júní 2022. Í starfinu felst sérkennsla og ráðgjöf nemenda, bæði í hópum og með einstaklinga.
50% starf sérfræðings í stoðþjónustu til 1. maí 2022. Í starfinu felst fyrst og fremst ráðgjöf,viðtöl og þjálfun nemenda með margþættan vanda.
Kröfur sem gerðar eru til starfanna eru eitt eða fleiri af eftirtöldu:
Kennsluréttindi
Sérkennari
Þroskaþjálfi
Námsráðgjafi
Félagsráðgjafi
Önnur háskólamenntun sem nýtist í ráðgjöf og eftirfylgni fyrir nemendur með margþættan vanda.
Aðrar kröfur sem gerðar eru til starfanna
Reynsla af störfum með nemendur í sérkennslu og/eða ráðgjöf er skilyrði.
Áhugi á að vinna með börnum
Sveigjanleiki
Jákvæðni og lipurð í samskiptum.
Vilji til að starfa í teymi.
Umsókn skulu fylgja eftirfarin gögn:
Upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Kynningarbréf um hugmyndir um áherslur viðkomandi í teymisvinnu stoðþjónustu grunnskóla.
Skrá yfir umsagnaraðila ásamt netföngum þeirra og símanúmerum.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga viðkomandi stéttarfélags
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2021 og skulu berast á netfangið siggi@skoli.hunathing.is
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigurður þór Ágústsson skólastjóri, sími 862-5466.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is