Læsisstefna

Á fundi skólastjórnenda í Austur-Húnavatnssýslu og Húnaþingi vestra haustið 2014, var ákveðið að vinna að sameiginlegri læsisstefnu fyrir sýslurnar. Hver skóli skipaði fulltrúa í sameiginlegt læsisteymi skólanna og jafnframt var myndað teymi innan hvers skóla. Lögð var áhersla á að sem flestir kæmu að gerð stefnunnar. Víða hefur verið leitað eftir ráðgjöf og hafa læsisráðgjafar Menntamálastofnunnar meðal annars komið með góðar ábendingar. Haustið 2017 hófst
innleiðing stefnunnar og er gert ráð fyrir að hún verði endurskoðuð reglulega.

Markmið sameiginlegrar læsisstefnu Austur-Húnavatnssýslu og Húnaþings vestra er að samræma kennsluhætti, námsmat og
markmið í læsiskennslu á svæðinu. Hlutverk stefnunnar er að styðja þá aðila sem að skólastarfinu koma; nemendur, aðstandendur þeirra og starfsfólk skólanna. Stefnt er að því að læsisstefnunni fylgi einfaldað dreifirit með grunnupplýsingum ætlað til glöggvunar á henni og sem leiðarvísir til aðstandenda svo þeir geti betur áttað sig á því sem til er ætlast af nemendum, foreldrum og kennurum.

Fulltrúar í læsisteyminu voru eftirtaldar:
Lára Helga Jónsdóttir, Grunnskóla Húnaþings vestra
Magdalena Berglind Björnsdóttir, Blönduskóla
Magdalena Margrét Einarsdóttir, Húnavallaskóla
Sonja Dröfn Helgadóttir, Höfðaskóla
Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri Austur-Húnavatnssýslu

Stefnunan má finna undir flipanum "STEFNA" eða smella hér