Könnun vegna skóladagatals

Nú ættu allir foreldrar að hafa fengið könnun sem inniheldur tvær spurningar. Könnunin er send út í kjölfar ábendinga sem bárust frá foreldrum um skóladagatal næsta vetrar. Önnur spurningin er um hvort og hversu langt vetrarfrí eigi að vera og hin hvort það séu aðrar ábendingar um skóladagatalið. Hægt er að svara könnuninni til 22. apríl.

Ef foreldrar hafa ekki fengið könnun senda á netfangið sitt er þeim bent á að hafa samband við skólastjórnendur.