Gjöf til bekkja frá foreldrafélagi

Foreldrafélagið gaf körfur með 14 spilastokkum í alla bekki. Körfur og stokkar eru merkt viðkomandi bekkjum. Hugmyndin er að þannig gangi sömu körfurnar á milli bekkja ár frá ári þannig að nýr fyrsti bekkur fær körfuna sem núverandi 1. bekkur er með og svo framvegis. Við þökkum foreldrafélaginu gjafirnar.