- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
38. fundur nemendaráðs 8. febrúar 2021
Mættir: Heiða Bára Pétursdóttir, Máney Dýrunn Þorsteinsdóttir, Eyrún Una Arnarsdóttir, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Sverrir Franz Vinginsson, Aníta Rós Brynjarsdóttir
1. Skíðaferð
Ákveðið að fara í skíðaferð 23. og 24. febrúar. Miðstig fer 23. febrúar og unglingastig 24. febrúar. Farið verður kl. 8:20 og komið heim kl. 14:30.
2. Öskudagur
Tillaga að skipulagi - kennsla samkvæmt stundaskrá utan neðangreindrar dagskrár:
Yngsta stig í íþróttahúsi 10:00 - 11:00
Miðstig í íþróttahúsi 12:30 - 13:30 ( Tillögur: reipitog, stórfiskaleikur, krókódíll, hundabein)
Elsta stig í íþróttahúsi 13:30 - 14:30 (Tillögur: Catch the flag, kíló, skotbolti, gryfjubolti)
3. Stelpuklósett
Rætt um stelpuklósett og að stúlkur á unglingastigi loka sig þar inni í hópum. Skoða þarf leiðir til að fyrirbyggja hópamyndun þar. Rætt um þá hugmynd að hafa eina stofu opna í frímínútum.
4. Fótboltavöllur
Rætt um fótboltavöll. Árekstrar verða milli aldurshópa á fótboltavellinum. Skólastjóri safnar athugasemdum og tillögum um fyrirkomulag.
Næsti fundur verður fimmtudaginn 25. febrúar kl. 8:30.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is