Fundargerð matsteymis

22. janúar 2020

Mættir:

Sigurður Þór, Eydís Bára Ellen Mörk, Hafdís Brynja, Borghildur

  1. Ytra mat. Farið yfir starfsáætlun í tímaröð.

Huga að því að allir hagsmunaaðilar taki þátt í stefnumótun skólans.

  1. Ákveðið að útvíkka matsteymi sem fundi 2-4 sinnum á ári:

 i.      Ákveðið að nemendaráð geri tillögu að því hvaða nemendur og hversu margir sitji í matsteymi. Tillaga nemendaráðs er  Indriði Rökkvi 6. bekk, Eyrún Una 8.bekk og Guðmundur Grétar 10.bekk

 ii.      Ákveðið að foreldrafélagið tilnefni fulltrúa foreldra og fjölda þeirra í matsteymi. Stjórn foreldrafélagsins mun sitja í matsteyminu.

 iii.      Ákveðið að fulltrúi skólayfirvalda í matsteymi verði sviðsstjóri. Foreldrafélagið benti á fulltrúa úr fræðsluráði.

iv.      Ákveðið að fundargerðir matsteymis verði opinberar á heimasíðu. Fundargerðir hafa verið birtar.

Gera þarf tilfærsluáætlun við skólalok og milli skóla

Fylgja hæfniviðmið í mentor nemendum sem flytjast á milli skóla? Mentor hefur ekki heimild til þess að flytja námsmat á milli skóla. Því gerir tilfærsluáætlun skólans ráð fyrir því að prent úta hæfnikort og setja í persónupöppu þegar nemandi hættir og skila til viðtökuskóla. Færa þarf þessa breytingu inn í vinnsluskrá.

              Persónumappa er alltaf send í viðtökuskóla.

              Persónumappa fer á skjalasafn við útskrift.

Endurskoða þarf vinnsluskrá met tilliti til nýrra starfsheita, s.s. ritara. Vinsluskrá hefur verið uppfærð með tilliti til starfsheita.

Vinna móttökuáætlun fyrir nemendur sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda

              Eftirfarandi áætlanir eru til staðar á heimasíðu

  • Nýbúar (á við alla nemendur)
  • Móttaka flóttamanna
  • Móttaka fósturbarna
  • Verklag nemendaverndarráðs vegna beiðna og umfang þjónustu           

                                          Þarf að uppfæra að litlu leyti.

 

Huga að því að nemendur séu með í ráðum við gerð einstaklingsnámskráa þegar við á.

              Unnið verður verklag við gerð einstaklingsnámskráa þar sem þetta kemur fram.

Fundargerð upplesin og samþykkt.