Fundargerð 4. bekkjar

2. apríl 

  • Allir boðnir velkomnir á fundinn.

  • Farið yfir síðustu fundargerð.

  • Hrós: hver og einn átti að hrósa yfir hópinn, nemendur áttu mis auðvelt með það.

  • Fótboltinn ræddur, nem. finnst stundum ósanngjörn skipting í liðin en kennari treystir stuðningsfulltrúum alveg til að skipta í lið. Nemendur fengu ábendingu um að klára leikinn og ræða svo við stuðningfulltrúann um möguleikann á að hafa skiptinguna sanngjarnari. Allir tóku vel í hugmyndina.

  • Lítill tími til að ganga frá áður en skóli byrjar á morgnana. Hugmynd um að fá ca. 5 mínútna fyrirvara áður en tíminn byrjar til að geta gengið frá.

  • Umsjónarkennari ekki á morgun fimmtudag og ekki vitað hverjir kenna. Nemendum langar að hafa áhrif á hverjir kenna þeim og hverjir ekki. 

  • Enduðum fundinn á hróshring.