Frístund eftir sumarleyfi

Frístund opnar aftur eftir sumarleyfi fimmtudaginn 11. ágúst kl. 8:00. Frístund verður opin kl. 8:00 - 16:00 til og með 18. ágúst.

Föstudaginn 19. ágúst er frístund lokuð vegna námskeiðs starfsfólks og einnig er hún lokuð mánudaginn 22. ágúst.

Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst en nánari upplýsingar varðandi það munu koma í næstu viku. 

Minnt er á að skrá þurfti nemendur í sumarfrístund í vor. Hægt er að kanna hvort laus pláss séu með því að hafa samband á fristund@skoli.hunathing.is eða í síma 895-2915.