Frístund

Börn í 1.- 4. bekk skólans eiga kost á að dvelja í Frístund eftir skólatíma dag hvern til kl. 16:00.  Foreldrar nemenda í 5. og 6. bekk geta einnig sótt um vistun innan starfstíma skóla í frístund ef fjöldi leyfir. Frístund starfar einnig alla aðra virka almanaksdaga ársins (nema viðtalsdaga, á skólaslitum, skólasetningu og v. endurmenntunar) frá kl. 8:00 – 16:00.

 

Þá daga sem skóli starfar ekki innan skóladagatals (s.s. starfsdaga, jólafrí og páskafrí) þarf að skrá nemendur sérstaklega fyrir ákveðinn tíma sem fram kemur á skóladagatali. Enginn skráist sjálfkrafa í vistun þessa daga og ef enginn er skráður er Frístund lokuð.
Skrá þarf börn í Frístund fyrir allan veturinn rafrænt á heimasíðu skólans sem tilgreinir hvaða daga  á að nota. Börn geta ekki byrjað í Frístund fyrr en skráningarblaði hefur verið skilað. Vistun í frístund miðast við mánaðamót, breytingar þurfa að berast fyrir 15. hvers mánaðar til þær taki gildi 1. mánaðar þar á eftir. Í skólabyrjun að hausti geta nemendur komið inn í Frístund með litlum fyrirvara.

Frístund utan starfstíma skóla á sumrin þarf að skrá sérstaklega samkvæmt auglýsingu.

 

Greitt er fyrir Frístund samkvæmt gjaldskrá Húnaþings vestra.

 

Smellið hér fyrir skráningarblað Frístundar

 

Umsjónarmaður frístundar er Fjóla Þórisdóttir