Framundan hjá nemendum

Mánudagur 30. maí - síðasti kennsludagur þessa skólaárs.

Matseðill: Pylsur

Þriðjudagur 31. maí - frístund opin 

Matseðill: Fiskréttur

Miðvikudagur 1. júní - skólaslit-frístund lokuð.

  • Nemendur í kór mæti kl. 14:00 í íþróttahús.

  • Skólaslit kl. 15:00 í íþróttahúsi

Sumarfrístund hefst fimmtudaginn 2. júní og er fram að sumarlokun til og með 12. júlí. Skráningu í sumarfrístund lýkur 28. maí.

Frá tónlistarskólanum:

Óskum öllum nemendum okkar til hamingju með tvenna frábæra vortónleika í vikunni!

ATH! Þeir sem hafa leigt hljóðfæri frá okkur í vetur verða að skila því aftur í skólann á mánudaginn.

Munið að umsóknarfrestur um hljóðfæra- og söngtíma hjá okkur næsta haust er 1. júní og skulu umsóknir sendar með tölvupósti til skólastjóra. 

Takk fyrir veturinn !