Framkvæmdir að hefjast við viðbyggingu við grunnskólann

Jarðvinna vegna viðbyggingar við grunnskóla Húnaþings vestra er að fara af stað. Áætlað er að framkvæmdir vegna jarðvinnu standi fram á sumar. Svæðið verður afgirt með lausum girðingum og eru íbúar beðnir um að sýna aðgát í kringum vinnusvæðið og ræða við börnin um það einnig. Unnið verður að fleygun á klöpp  á virkum dögum á milli kl. 8:00 og 18:00 og laugardaga milli kl. 10:00 og 16:00.

Áætlað er að skólahúsnæðið verði svo tilbúið og tekið í notkun haustið 2022.